F.v: Júníana Björg Óttarsdóttir frá Snæfellsbæ, Sigurbjörg Ottesen frá Eyja- og Miklaholtshreppi, Garðar Svansson frá Grundarfjarðarbæ, Sigurður Guðmundsson frá Borgarbyggð, Einar Brandsson frá Akraneskaupstað, Pétur Davíðsson frá Skorradalshreppi, Páll Snævar Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV, Guðveig Lind Eyglóardóttir frá Borgarbyggð og Ragnar B. Sæmundsson (formaður SSV) frá Akraneskaupstað. Á myndina vantar þrjá fulltrúa sem tóku þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað. Þau Jakob B. Jakobsson frá Stykkishólmi, Ingibjörg Þóranna Steinudóttir frá Dalabyggð og Andrea Ýr Arnarsdóttir frá Hvalfjarðarsveit. Ljósm. SSV

Kveðjufundur stjórnar SSV

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa verið starfrækt frá árinu 1969 og eru sameiginlegur samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Vesturlandi sem frá 1. júní síðastliðnum eru átta talsins. Starfssvæði samtakanna nær frá botni Hvalfjarðar í suðri að botni Gilsfjarðar í norðri. Öll sveitarfélög á Vesturlandi eiga aðild að SSV og fulltrúa í stjórn. Samkvæmt lögum SSV er meginhlutverk samtakanna að vinna að hagsmunum sveitarfélaganna á Vesturlandi. SSV hefur því mikilvægu hlutverki að gegna þegar kemur að sameiginlegum hagsmunamálum landshlutans og framþróun byggðar á Vesturlandi. Eitt af markmiðum samtakanna er einnig að efla samstarf sveitarfélaganna og stuðla að aukinni þekkingu sveitarstjórnarfólks á verkefnum sveitarstjórna. Með því er unnið að því að styrkja sveitarstjórnarstigið og gera störf og verkefni sveitarfélaga bæði eftirsóknarverðari og áhugaverðari. SSV vinnur jafnframt að því að kynna kosti Vesturlands, efla samkennd íbúa og styrkja stöðu landshlutans í samfélagslegu og atvinnulegu tilliti. Samtökin leggja þannig sitt af mörkum til að auka sýnileika Vesturlands og styðja við jákvæða þróun á svæðinu.

Núverandi stjórn samtakanna hélt sinn síðasta fund á kjörtímabilinu miðvikudaginn 10. júní. Auka aðalfundur fer svo fram 1. júlí næstkomandi þar sem kosin verður ný stjórn SSV.