Fjöldi hjólreiðafólks verður á ferðinni á morgun í uppsveitum Borgarfjarðar

Á morgun, laugardaginn 13. júní, stendur Breiðablik fyrir Greflinum, árlegri malarhjólakeppni í Borgarfirði. Reiknað er með að keppendur verði um 170. Fara þeir þrjár mismunandi vegalengdir sem liggja víða um Borgarfjörðinn. Þeir sem lengst hjóla fara 207 kílómetra. Lagt verður af stað frá félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal, upp í Þverárhlíð þar sem þvælst verður yfir Kjarará fyrir ofan Örnólfsdal, niður að Lindarhvoli og upp Norðurárdalinn. Þá yfir Grjótháls og aftur í Þverárhlíð og yfir Litlu Þverá hjá bænum Grjóti. Þarna ættu flestir að vera orðnir vel blautir í fætur, en þar með lýkur "vöðum" á leið hjólreiðafólks. Næst verður hjólað um Hvítársíðu, krókur um Kalmanstungu og upp hálendisveginn á Kaldadal. Hæsti punkturinn á Kaldadal er um 700 m. Loks tekur við ferð niður Lundarreykjadal, með viðkomu í Flókadal og svo endað aftur í Logalandi.