
Landhelgisgæsla Íslands tekur ómannað loftfar til notkunar í vikunni sem ætlað er til eftirlits á hafsvæðinu umhverfis landið næstu mánuði. Loftfarið verður gert út frá Hornafjarðarflugvelli og er af gerðinni Tekever AR5. Það verður nýtt við löggæslu, leit, björgun og mengunareftirlit á hafsvæðinu umhverfis Ísland. „Tilkoma loftfarsins mun styrkja stöðumynd Landhelgisgæslunnar á hafinu umhverfis Ísland…Lesa meira








