Fréttir

true

Einnig kosið um afstöðu til sameiningar

Í sveitarfélaginu Hvalfjarðarveit eru tveir framboðslistar í kjöri; A listi Samhentrar sveitar og Í listi Íbúahreyfingarinnar. Samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar fer samhliða fram óbindandi viðhorfskönnun, meðal kjörgengra íbúa, um afstöðu til sameiningar við önnur sveitarfélög. Kosið er í Stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3 í Melahverfi og lýkur kjörfundi klukkan 21:00 í kvöld.Lesa meira

true

Góð kjörsókn í Grundarfirði

Klukkan 17 í dag höfðu 60,4% á kjörskrá í Grundarfjarðarbæ greitt atkvæði sitt. Alls eru 639 á kjörskrá og höfðu 291 greitt atkvæði á kjörstað í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Þá höfðu 95 greitt atkvæði utan kjörfundar, samkvæmt upplýsingum frá formanni kjörstjórnar. Það var fréttavefur Ríkisútvarpsins sem greindi frá. Tveir listar eru í framboði í sveitarfélaginu: B-listi…Lesa meira

true

Vöruðu við að gervigreind gæfi rangar upplýsingar

Ágæt og upplýsandi yfirlýsing er frá yfirkjörstjórn Dalabyggðar á vef sveitarfélagsins; dalir.is. Þar er m.a. hægt að sjá hvar og hvenær er kosið, hverjir eru í framboði og hverjir ekki. Persónukjör er viðhaft í Dölum líkt og fyrir fjórum árum. Í tilkynningunni er fólk varað við að styðjast við gervigreind – og segir: „Af gefnu…Lesa meira

true

Kjörsókn mun meiri á Akranesi en fyrir fjórum árum

Klukkan 17:00 í dag höfðu 2.826 kosið í Grundaskóla á Akranesi. Kjörsókn var þá 44,91%. Það er mun meiri kjörsókn en var fyrir fjórum árum en þá var hún 39,8% á sama tíma. Kjörsóknin nú er hins vegar á pari við kosningarnar 2018. Einar Gunnar Einarsson formaður kjörstjórnar á Akranesi segir í samtali við Skessuhorn…Lesa meira

true

Síðasti kjörfundurinn í Skorradalshreppi

Kosningar í dag til sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps marka um leið endalok sérstakrar kjördeildar í Skorradal. Í hreppnum eru 59 á kjörskrá að þessu sinni. Vel fór á með þeim Ástríði Guðmundsdóttur, Gunnari Rögnvaldssyni og Davíð Péturssyni þegar blaðamaður Skessuhorn leit þar við um nónbil í dag. Kjörsókn í hinu sameinuðu sveitarfélagi var þá…Lesa meira

true

Gleðilegan kosningadag!

Í dag ganga landsmenn að kjörborðinu og kjósa til sveitarstjórna víðsvegar um landið. Hér á Vesturlandi verður kosið í sjö sveitarfélögum af átta, en sjálfkjörið er í Snæfellsbæ þar sem einungis eitt framboð barst. Kosningar fara því fram í Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppi, Sveitarfélaginu Stykkishólmi og í Grundarfjarðarbæ.…Lesa meira

true

Strandamenn strand í sameiningu

Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að ógilda kosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps, en tillaga um sameiningu var samþykkt í báðum hreppunum í íbúakosningu sem fram fór í mars. Meirihluti íbúa beggja sveitarfélaga samþykkti að sveitarfélögin yrðu sameinuð og lagt var til að sameiningin tæki gildi í lok maí. Framkvæmd kosninganna var kærð til innviðaráðuneytisins sem hefur…Lesa meira

true

Landnámssetrið fagnaði 20 ára afmæli

Miðvikudaginn 13. maí síðastliðinn var haldinn stórfagnaður í Landnámssetrinu í Borgarnesi í tilefni af 20 ára stofn- og starfsafmæli fyrirtækisins. Það var ríkjandi gleði og stemning í setrinu og vel úti látnar veitingar. Fjölmenni var á viðburðinum þar sem fólk kom til að samfagna með stofnendunum Kjartani Ragnarssyni og Sigríði Margréti Guðmundsdóttur, sem hafa lagt…Lesa meira

true

Bílaverkstæði Hjalta á Akranesi er nýr þjónustuaðili Toyota

Bílaverkstæði Hjalta við Smiðjuvelli 15 á Akranesi hefur bæst í þjónustunet Toyota á Íslandi og er orðinn viðurkenndur þjónustuaðili. Úlfar Steindórsson forstjóri Toyota og Kristmundur Einarsson framkvæmdastjóri Bífreiðaverkstæðis Hjalta skrifuðu undir samning þar að lútandi í morgun. Verkstæðið mun sinna öllu almennu viðhaldi fyrir eigendur Toyota bíla og ekki síður fyrirbyggjandi viðhaldi með reglulegum smur-…Lesa meira

true

Samið um stuðning við UMFG til fjögurra ára

Nýverið undirrituðu Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir formaður Ungmennafélags Grundarfjarðar, Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri og Hinrik Konráðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi samstarfssamning sem gilda mun frá 2026-2029, að báðum árum meðtöldum. Markmið samningsins er að tryggja öflugt íþrótta-, forvarna- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni í Grundarfirði ásamt því að styrkja starf UMFG. „Áhersla er lögð á mikilvægi þess…Lesa meira