
Bílaverkstæði Hjalta á Akranesi er nýr þjónustuaðili Toyota
Bílaverkstæði Hjalta við Smiðjuvelli 15 á Akranesi hefur bæst í þjónustunet Toyota á Íslandi og er orðinn viðurkenndur þjónustuaðili. Úlfar Steindórsson forstjóri Toyota og Kristmundur Einarsson framkvæmdastjóri Bífreiðaverkstæðis Hjalta skrifuðu undir samning þar að lútandi í morgun. Verkstæðið mun sinna öllu almennu viðhaldi fyrir eigendur Toyota bíla og ekki síður fyrirbyggjandi viðhaldi með reglulegum smur- og þjónustuskoðunum.
Viðurkenndir þjónustuaðilar Toyota á Íslandi vinna í samræmi við kröfur framleiðanda Toyota og fá starfsmenn þeirra tilskylda þjálfun til að veita viðskiptavinum Toyota hnökralausa þjónustu í samræmi við kröfur og staðla Toyota. Viðurkenndir þjónustuaðilar sinna enn fremur ábyrgðarviðgerðum fyrir hönd framleiðandans og vinna allir í samræmi við fastverkakerfi Toyota til að tryggja að viðskiptavinurinn viti ávallt að hverju hann gengur þegar hann kemur í þjónustu til viðurkennds þjónustuaðila Toyota. Á bílaverkstæði Hjalta eru nú 18 starfsmenn.
