
: Síðasta kjörstjórnin í Skorradalshreppi. F.v. Davíð Pétursson, Gunnar Rögnvaldsson og Ástríður Guðmundsdóttir. Ljósm. mm
Síðasti kjörfundurinn í Skorradalshreppi
Kosningar í dag til sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps marka um leið endalok sérstakrar kjördeildar í Skorradal. Í hreppnum eru 59 á kjörskrá að þessu sinni. Vel fór á með þeim Ástríði Guðmundsdóttur, Gunnari Rögnvaldssyni og Davíð Péturssyni þegar blaðamaður Skessuhorn leit þar við um nónbil í dag. Kjörsókn í hinu sameinuðu sveitarfélagi var þá 29%. Kjördeildinni í Hreppslaug verður lokað klukkan 18 í dag, hafi enginn mætt hálftíma fyrir lokun.