
Samið um stuðning við UMFG til fjögurra ára
Nýverið undirrituðu Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir formaður Ungmennafélags Grundarfjarðar, Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri og Hinrik Konráðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi samstarfssamning sem gilda mun frá 2026-2029, að báðum árum meðtöldum. Markmið samningsins er að tryggja öflugt íþrótta-, forvarna- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni í Grundarfirði ásamt því að styrkja starf UMFG. „Áhersla er lögð á mikilvægi þess öfluga starfs sem fram fer innan UMFG fyrir samfélagið í heild og að öll börn og unglingar innan UMFG hafi jafnan aðgang og möguleika til íþróttaiðkunar,“ eins og segir í samningnum. Einnig verður leitast við að samþætta og auka samvinnu í nærumhverfinu til að skapa samfellu í skóla-, frístunda- og íþróttastarfi. Markvisst samstarf allra félaga og deilda, þar sem þarfir barnanna og unglinga eru í forgrunni, er forsenda þess að efla félagslegan styrkleika, eins og segir í samningnum.