
Stjórnsýsluhúsið í Búðardal.
Vöruðu við að gervigreind gæfi rangar upplýsingar
Ágæt og upplýsandi yfirlýsing er frá yfirkjörstjórn Dalabyggðar á vef sveitarfélagsins; dalir.is. Þar er m.a. hægt að sjá hvar og hvenær er kosið, hverjir eru í framboði og hverjir ekki. Persónukjör er viðhaft í Dölum líkt og fyrir fjórum árum. Í tilkynningunni er fólk varað við að styðjast við gervigreind - og segir: „Af gefnu tilefni skal tekið fram að gervigreindin getur gefið rangar upplýsingar um óbundnar kosningar og ekki mælt með þeirri aðferð við að afla sér upplýsinga. Frekar er mælt með að afla sér upplýsinga á heimasíðu Landskjörstjórnar, hér á þessari síðu eða hafa samband við kjörstjórnarfulltrúa með spurningar,“ sagði í tilkynningu á dalir.is frá yfirkjörstjórn Dalabyggðar.