
Einnig kosið um afstöðu til sameiningar
Í sveitarfélaginu Hvalfjarðarveit eru tveir framboðslistar í kjöri; A listi Samhentrar sveitar og Í listi Íbúahreyfingarinnar. Samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar fer samhliða fram óbindandi viðhorfskönnun, meðal kjörgengra íbúa, um afstöðu til sameiningar við önnur sveitarfélög. Kosið er í Stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3 í Melahverfi og lýkur kjörfundi klukkan 21:00 í kvöld.