
Hjónin Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, stofnendur og eigendur Landnámssetursins í Borgarnesi. Ljósm. óhk
Landnámssetrið fagnaði 20 ára afmæli
Miðvikudaginn 13. maí síðastliðinn var haldinn stórfagnaður í Landnámssetrinu í Borgarnesi í tilefni af 20 ára stofn- og starfsafmæli fyrirtækisins. Það var ríkjandi gleði og stemning í setrinu og vel úti látnar veitingar. Fjölmenni var á viðburðinum þar sem fólk kom til að samfagna með stofnendunum Kjartani Ragnarssyni og Sigríði Margréti Guðmundsdóttur, sem hafa lagt líf og sál í verkefnið samfellt í tvo áratugi. Að sjálfsögðu var í boði glæsilega skreytt afmæliskaka sem bragðaðist eins vel og hún leit út. Blaðamaður Skessuhorns kíkti við og smellti nokkrum myndum.