Kosið í Kleppjárnsreykjakjördeild í Borgarbyggð. Þarna má sjá Elísabet Halldórsdóttur og Jónínu Eiríksdóttur. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Gleðilegan kosningadag!

Í dag ganga landsmenn að kjörborðinu og kjósa til sveitarstjórna víðsvegar um landið. Hér á Vesturlandi verður kosið í sjö sveitarfélögum af átta, en sjálfkjörið er í Snæfellsbæ þar sem einungis eitt framboð barst. Kosningar fara því fram í Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppi, Sveitarfélaginu Stykkishólmi og í Grundarfjarðarbæ. Á Akranesi eru fimm listar í boði og í Hvalfjarðarsveit tveir. Í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps eru fjögur framboð. Í Dalabyggð er persónukjör og einnig í Eyja- og Miklaholtshreppi. Í Sveitarfélaginu Stykkishólmi eru tvö framboð sem og í Grundarfjarðarbæ. Í Snæfellsbæ verður D listi Sjálfstæðisflokks við völd næstu fjögur árin.

Gleðilegan kosningadag! - Skessuhorn