Fréttir

true

Tvö á fæðingadeildinni

Vorið er tíminn þegar nýtt líf kviknar. Þessa skemmtilegu mynd tók Svanur Steinarsson í Straumfirði á Mýrum í morgun. Þarna liggur ærin Mjallhvít makindalega undir húsvegg, komin fast að burði. Við hlið hennar er tjaldur sem liggur á þremur eggjum og lætur Mjallhvíti ekki trufla sig við sína vinnu.Lesa meira

true

Notendavænt umsóknarviðmót fyrir byggingarleyfi

Akraneskaupstaður hefur nú innleitt nýtt og notendavænt umsóknarviðmót fyrir byggingarleyfi en það er þróað af Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS). Með innleiðingunni bætist sveitarfélagið í hóp 20 sveitarfélaga á landinu sem þegar hafa tengst kerfinu, en þeirra á meðal er Borgarbyggð. Stefnt er að því að öll sveitarfélög á landinu verði komin inn í kerfið…Lesa meira

true

Búast má við mikilli umferð og líflegri helgi á Akranesi

Segja má að Akranes muni iða af lífi næstu daga og fyrirséð að umferð verður mikil. Fjöldi viðburða fer fram auk þess sem kosin verður ný bæjarstjórn. Íslandsmótið í hópfimleikum er nú hafið í fimleikahúsinu við Vesturgötu en mótinu lýkur á sunnudaginn. Fremstu hópfimleikalið landsins mæta til keppni í mörgum aldurshópum. Hundruðir keppenda eru því…Lesa meira

true

Skagamenn áfram í Mjólkurbikarnum

Leikir voru spilaðir í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á miðvikudaginn. Skagamenn tóku á móti Grindavík. Heimamenn komust yfir eftir um stundafjórðungs leik þegar Erik Tobias Sandberg skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Guðmundi Þórarinssyni. Markús Páll Ellertsson var nálægt því að bæta við öðru markinu snemma í seinni hálfleik en hann skaut í slá. Það…Lesa meira

true

Skoðunardagur fornbíla verður 12. júní

Búið er að bóka dagsetningu fyrir sameiginlegan skoðunardag Fornbílafjelags Borgarfjarðar og Raftanna hjá Frumherja við Sólbakka í Borgarnesi. Hann verður föstudaginn 12. júní kl. 14-18. Frumherji mun bjóða upp á grillaðar pylsur og gos af þessu tilefni. Viðbúið er að margir eldri vélfákar, sem alla jafnan eru ekki í umferðinni, mæti á svæðið.Lesa meira

true

Barn sem ræktar kál – borðar kál

Á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði er leikskólinn Hnoðraból. Á dögunum fengu leikskólabörnin afhent gróðurhús frá Bambahúsum. Húsið er kærkomin viðbót við það ræktunarstarf sem þau eru að vinna að bæði inni og úti í svokölluðum vermireitum. „Börnin læra ekki aðeins um ræktun, heldur einnig þolinmæði, ábyrgð og að mynda tengsl við náttúruna,“ segir í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Bókmenntaganga á vegum Safnahúss Borgarfjarðar

Á morgun, laugardaginn 16. maí kl. 11:15, verður boðið upp á að slást í för með „Bókmenntagöngu“ frá Safnahúsi Borgarfjarðar. Markmið göngunnar er að vekja athygli á þróun kvenréttinda í tengslum við samstarfsverkefni almenningsbókasafna á Íslandi og Kvennaárs á „Læsi á stöðu og baráttu kvenna“. Genginn verður stuttur hringur í nágrenninu og endað aftur í…Lesa meira

true

Nýr þjónustusamningur Akraneskaupstaðar við Íþróttabandalag Akraness

Í morgun var skrifað undir nýjan þjónustusamning milli Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. Samningurinn er að þessu sinni gerður til fimm ára í stað fjögurra og gildir árin 2027–2031. Áður hafði bæði stjórn Íþróttabandalags Akraness og bæjarstjórn staðfest samninginn fyrir sitt leyti. Undirritunin fór fram við nýja íþróttahúsið á Jaðarsbökkum en samninginn undirrituðu Gyða Bergþórsdóttir formaður…Lesa meira

true

HeV segir neysluvatn á Akranesi uppfylla reglugerðir um gæði

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands er eftirlitsaðili með neysluvatni á Akranesi. Eftirlitið felst í að taka sýni úr dreifikerfi Veitna en einnig eru tekin sýni hjá viðkvæmum notendum. Húseigendur bera svo sjálfir ábyrgð á að lagnir innan húss séu í lagi. Í tilkynningu á vef HeV kemur fram að tíðni sýnatöku eftirlitsins er að lágmarki sjö sinnum á…Lesa meira

true

Þurfa að breyta skipulagi til að geta stækkað hjúkrunarheimilið Höfða

Fyrir liggja áform um verulega stækkun hjúkrunarheimilisins Höfða á Akranesi og stefnt að byggingu 60 nýrra hjúkrunarrýma. Drög að frumathugun vegna verkefnisins gera ráð fyrir viðbyggingu í suðurátt frá núverandi húsnæði. Fram kemur í bókun bæjarráðs Akraneskaupstaðar 7. maí síðastliðinn að í frumathugun eru settir fram nokkrir valkostir um útfærslu uppbyggingarinnar og liggur endanleg staðsetning…Lesa meira