Steinar Adolfsson bæjarstjóri og Gyða Bergþórsdóttir formaður ÍA handsala samninginn. Fyrir aftan standa fulltrúar ÍA og Akraneskaupstaðar. Ljósm. Skessuhorn/mm

Nýr þjónustusamningur Akraneskaupstaðar við Íþróttabandalag Akraness

Í morgun var skrifað undir nýjan þjónustusamning milli Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. Samningurinn er að þessu sinni gerður til fimm ára í stað fjögurra og gildir árin 2027–2031. Áður hafði bæði stjórn Íþróttabandalags Akraness og bæjarstjórn staðfest samninginn fyrir sitt leyti. Undirritunin fór fram við nýja íþróttahúsið á Jaðarsbökkum en samninginn undirrituðu Gyða Bergþórsdóttir formaður stjórnar ÍA og Steinar Adolfsson bæjarstjóri. Bæði fögnuðu því í samtali við Skessuhorn að tekist hafi að ljúka vinnu við endurskoðun samningsins áður en ný bæjarstjórn tæki við. Með samningnum skapist festa og fyrirsjáanleiki í starfi íþróttabandalagsins varðandi ýmis atriði er snerta íþróttaiðkun og kostnað t.d. foreldra við íþróttir barna sinna. Samningurinn felur í sér nokkur atriði sem ekki voru í fyrrum samningi, en unnið hefur verið að gerð hans síðan í ágúst á síðasta ári. Árleg fjárveiting Akraneskaupstaðar til Íþróttabandalagsins á grundvelli þjónustusamningins er um hundrað milljónir króna.

Fram kemur í bókun bæjarráðs Akraness vegna endurskoðunar þjónustusamningsins að skóla- og frístundaráð hefur unnið að tillögum um breytingar á frístundastyrkjum. Þær tillögur fela í sér fjögurra ára áætlun um hækkun styrkjanna þar sem gert er ráð fyrir að frístundastyrkur hækki um 20% á ári, á tímabilinu 2027-2030. Frístundastyrkur Akraneskaupstaðar verður hækkaður í áföngum á næstu fjórum árum, um 20% árlega. Í minnisblaði um verkefnið kemur fram að styrkupphæðir verða áfram þrepaskiptar eftir fjölda barna á hverju heimili, sem jafngildir systkinaafslætti. Sú útfærsla tekur mið af því að aðildarfélögum ÍA getur reynst erfitt að veita afslætti á milli félaga vegna ólíks rekstrarforms þeirra. Akraneskaupstaður leggur sérstaka áherslu á að hækkun frístundastyrksins nýtist börnum og fjölskyldum á Akranesi með beinum hætti og leiði ekki til hækkunar æfingagjalda. Hvatakerfi er á félögin, því þau aðildarfélög ÍA sem halda aftur af hækkunum æfingagjalda og hækka ekki umfram kjarasamningsbundnar hækkanir fá viðbótarfjárstuðning.

„Með tillögunni er stigið mikilvægt skref í að efla frístundastuðning sveitarfélagsins og færa hann nær því sem almennt gerist í öðrum sveitarfélögum, stuðla að aukinni þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi og styðja við barnafjölskyldur á Akranesi,“ sagði í bókun bæjarráðs. Jafnframt kom fram að hækka þarf framlag bæjarins til ÍA um 10,3 milljónir við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Í samningnum nú er bætt inn ákvæði um að ungmenni í afreksíþróttum njóti sveigjanlegs vinnufyrirkomulags hjá Vinnuskóla Akraness. Akraneskaupstaður veitir sérstaka afreksstyrki fyrir börn og ungmenni á aldrinum 13–17 ára sem sýnt hafa framúrskarandi árangur í íþróttum og hafa verið valin í úrtaks eða lokahópa landsliða Íslands.

Ýmislegt fleira er nýmæli í samningun. Bókhaldsþjónusta verður t.d. viðbót við rekstrarstyrk til aðildarfélaga ÍA, en um er að ræða áherslu á sameiginlega stoðþjónustu fyrir félögin sem dregur úr kostnaði/áhættu vegna fjármálastjórnunar. Þá gera Akraneskaupstaður og ÍA með sér samning um afnot ÍA af fasteigninni Kirkjuhvoli við Merkigerði 7 og gildir hann út samningstímann, með þeim fyrirvara þó að húsið verði selt.