Notendavænt umsóknarviðmót fyrir byggingarleyfi

Akraneskaupstaður hefur nú innleitt nýtt og notendavænt umsóknarviðmót fyrir byggingarleyfi en það er þróað af Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS). Með innleiðingunni bætist sveitarfélagið í hóp 20 sveitarfélaga á landinu sem þegar hafa tengst kerfinu, en þeirra á meðal er Borgarbyggð. Stefnt er að því að öll sveitarfélög á landinu verði komin inn í kerfið árið 2027.