
Bókmenntaganga á vegum Safnahúss Borgarfjarðar
Á morgun, laugardaginn 16. maí kl. 11:15, verður boðið upp á að slást í för með „Bókmenntagöngu“ frá Safnahúsi Borgarfjarðar. Markmið göngunnar er að vekja athygli á þróun kvenréttinda í tengslum við samstarfsverkefni almenningsbókasafna á Íslandi og Kvennaárs á „Læsi á stöðu og baráttu kvenna“.