Tvö á fæðingadeildinni

Vorið er tíminn þegar nýtt líf kviknar. Þessa skemmtilegu mynd tók Svanur Steinarsson í Straumfirði á Mýrum í morgun. Þarna liggur ærin Mjallhvít makindalega undir húsvegg, komin fast að burði. Við hlið hennar er tjaldur sem liggur á þremur eggjum og lætur Mjallhvíti ekki trufla sig við sína vinnu.