Akranes að sumarlagi. Ljósm. mm

Búast má við mikilli umferð og líflegri helgi á Akranesi

Segja má að Akranes muni iða af lífi næstu daga og fyrirséð að umferð verður mikil. Fjöldi viðburða fer fram auk þess sem kosin verður ný bæjarstjórn.

Íslandsmótið í hópfimleikum er nú hafið í fimleikahúsinu við Vesturgötu en mótinu lýkur á sunnudaginn. Fremstu hópfimleikalið landsins mæta til keppni í mörgum aldurshópum. Hundruðir keppenda eru því á ferðinni í kringum mótshaldið.

Önnur íþróttakeppni; Akrafjall Ultra, fer fram á morgun, laugardag, og er metþátttaka í hlaupið, 700 skráðir hlauparar. Keppnin er utanvegahlaup og keppt í fjórum vegalengdum, frá 10 km og upp í 46 km, auk krakkahlaups sem er einn km í nágrenni Akraneshallarinnar. Akrafjall Ultra verður ræst hjá UltraForm Ægisbraut 29 en endar í Akraneshöllinni.

Meðal annarra viðburða má nefna að Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur tvenna tónleika í nýja íþróttahúsinu við Jaðarsbakka í dag, föstudag. Fyrst eru það barnatónleikar þar sem börn úr leik- og grunnskólum Akraness og Hvalfjarðarsveitar eru boðsgestir. Kvöldtónleikarnir hefjast svo kl. 19 í kvöld þar sem auk Sinfóníuhljómsveitarinn mun hátt í 200 manna kór auk einsöngvara koma fram. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Síðast en ekki síst ber að nefna að á morgun, laugardaginn 16. maí verður kosið til bæjarstjórnar á Akranesi. Kjörstaður verður að þessu sinni Grundaskóli og gengið inn um aðalinngang skólans. Allar nánari upplýsingar um kjörfund og deildir, tímasetningar og annað má sjá í auglýsingu í Skessuhorni vikunnar og á vef Akraneskaupstaðar.

Í ljósi mannfjölda í bænum og fjölda viðburða er fólk hvatt til mikillar aðgæslu í umferðinni og jafnvel að rölta á milli staða ef það hefur tök á því.