
Skagamenn áfram í Mjólkurbikarnum
Leikir voru spilaðir í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á miðvikudaginn. Skagamenn tóku á móti Grindavík. Heimamenn komust yfir eftir um stundafjórðungs leik þegar Erik Tobias Sandberg skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Guðmundi Þórarinssyni. Markús Páll Ellertsson var nálægt því að bæta við öðru markinu snemma í seinni hálfleik en hann skaut í slá. Það stefndi í sigur ÍA en Gunnleifur Orri Gunnleifsson jafnaði metin fyrir Grindavík í blálokin og því þurfti að grípa til framlengingar. Þegar sjö mínútur voru til loka venjulegs leiktíma í framlengingunni fylgdi Lárus Orri Ólafsson eftir skoti frá Rafael Victor og kom Grindavík yfir. Skagamenn gáfust þó ekki upp því Viktor Jónsson skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf fra Hauki Andra Haraldssyni í lokin, þegar um 120 mínútur voru liðnar af leiknum, og grípa þurfti til vítaspyrnukeppni.