Þurfa að breyta skipulagi til að geta stækkað hjúkrunarheimilið Höfða

Fyrir liggja áform um verulega stækkun hjúkrunarheimilisins Höfða á Akranesi og stefnt að byggingu 60 nýrra hjúkrunarrýma. Drög að frumathugun vegna verkefnisins gera ráð fyrir viðbyggingu í suðurátt frá núverandi húsnæði. Fram kemur í bókun bæjarráðs Akraneskaupstaðar 7. maí síðastliðinn að í frumathugun eru settir fram nokkrir valkostir um útfærslu uppbyggingarinnar og liggur endanleg staðsetning og umfang viðbyggingar ekki fyrir. „Ljóst er að eftir því hvaða valkostur verður fyrir valinu kann að þurfa að taka nánar afstöðu til samræmis við gildandi skipulagsheimildir. Svæðið er skilgreint sem samfélagsþjónusta (S208) í Aðalskipulagi Akraness 2021–2033 og er uppbygging hjúkrunarheimilis í samræmi við þá landnotkun. Hins vegar kann útfærsla einstakra valkosta að hafa áhrif á afmörkun byggingarreita og nýtingu lóðar,“ segir í bókun ráðsins.