
Börnin læra ekki aðeins um ræktun, heldur einnig þolinmæði, ábyrgð og að mynda tengsl við náttúruna. Ljósm. Bambahús
Barn sem ræktar kál – borðar kál
Á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði er leikskólinn Hnoðraból. Á dögunum fengu leikskólabörnin afhent gróðurhús frá Bambahúsum. Húsið er kærkomin viðbót við það ræktunarstarf sem þau eru að vinna að bæði inni og úti í svokölluðum vermireitum. „Börnin læra ekki aðeins um ræktun, heldur einnig þolinmæði, ábyrgð og að mynda tengsl við náttúruna,“ segir í tilkynningu frá leikskólanum. Bambahúsið styður við Grænfánastefnu skólans og verður húsið miðpunkturinn þegar sótt verður um endurnýjun á henni á komandi hausti.