
Garðyrkjudeild Akraneskaupstaðar hefur fest kaup á nýjum sláttutraktor. Traktorinn hefur nú þegar verið prufukeyrður og kemur afar vel út. Fyrsti sláttur ársins var mánudaginn 4. maí en þá var gras slegið á nokkrum hringtorgum. Daníel Valdimarsson starfsmaður garðyrkjudeildarinnar tók gripinn til kostanna og reyndist hann mjög vel að hans sögn. „Nú verður hægt að slá…Lesa meira








