Slegið á hringtorginu við Garðabraut. Ljósm. Akraneskaupstaður

Akraneskaupstaður slær í gegn með nýjum sláttutraktor

Garðyrkjudeild Akraneskaupstaðar hefur fest kaup á nýjum sláttutraktor. Traktorinn hefur nú þegar verið prufukeyrður og kemur afar vel út. Fyrsti sláttur ársins var mánudaginn 4. maí en þá var gras slegið á nokkrum hringtorgum. Daníel Valdimarsson starfsmaður garðyrkjudeildarinnar tók gripinn til kostanna og reyndist hann mjög vel að hans sögn. „Nú verður hægt að slá yfir þau svæði sem Vinnuskólinn sér um að slá einu sinni til tvisvar áður en hann hefst og einnig eftir að honum lýkur,“ er haft eftir Jóni Arnari Sverrissyni garðyrkjustjóra. Vinnuskólinn hefst 11. júní og stendur til 13. ágúst, en gras sprettur vel og lengi utan þess tímabils.