Fréttir

true

Vortónleikar söngnemenda í Grundarfirði

Tónlistarskóli Grundarfjarðar er þessa dagana að útskrifa nemendur með nokkrum tónleikum þar sem nemendur leika listir sínar. Í gær voru nemendur í söngdeildinni með glæsilega tónleika í Grundarfjarðarkirkju. Þar byrjuðu yngstu nemendurnir að syngja nokkur lög saman áður en eldri nemendur komu hver af öðrum og sungu einsöng af mikilli innlifun.Lesa meira

true

Héldu sameiginlegan framboðsfund á Akranesi

Framboðin fimm sem bjóða fram lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akranesi 16. maí stóðu fyrir sameiginlegum framboðsfundi í Tónbergi í gærkvöldi. Fundinum stýrði Magnús Guðmundsson. Til svara voru allir oddvitar auk eins að auki frá hverju framboði. Frá Viðreisn voru Jón Guðni Guðmundsson og Helga Björg Þrastardóttir, frá Miðflokki Hrafn Ágúst Björnsson og Ólafur Rúnar Sigurðsson,…Lesa meira

true

Fjallað um áhrif afnáms skeldýrabóta og línuívilnunar í nýrri skýrslu

„Á Vesturlandi yrðu bein fjárhagsleg áhrif fullkomins afnáms línuívilnunar og skeldýrabóta á útsvarstekjur viðkomandi sveitarfélaga mestar á Sveitarfélagið Stykkishólm.  Grundarfjarðarbær yrði þar annar í röðinni, Snæfellsbær þriðji og Akraneskaupstaður fjórði. Vísbendingar eru um að möguleikar útgerða í þessum sveitarfélögum til að bæta sér það upp með strandveiði eru samt mestir í Sveitarfélaginu Stykkishólmi, þá Snæfellsbæ,…Lesa meira

true

Opnar sýninguna Jaðarsjón í Safnahúsi

Soffía Björg Óðinsdóttir opnar málverkasýninguna Jaðarsjón í Safnahúsi Borgarfjarðar á morgun, laugardaginn 9. maí klukkan 15-17. Þar sýnir hún akrílverk úr ímyndaðri náttúru; fjöll, firði, fossa og hálendi úr hugarheimi listakonunnar. Sýningin verður opin frá 9. maí til 1. júní á opnunartíma Safnahússins. Soffía Björg Óðinsdóttir er fædd og uppalin í Einarsnesi í Borgarfirði. Hún…Lesa meira

true

Eðnukonur færðu Höfða höfðinglega gjöf

Lionsklúbburinn Eðna kom færandi hendi á hjúkrunarheimilið Höfða á Akranesi síðastliðinn miðvikudag. Fulltrúar frá líknarnefnd klúbbsins afhentu hjúkrunarsviði heimilisins seglalyftara og tvær loftdýnur að gjöf. Þá fékk dagdvöl Höfða einnig nýjar sessur. „Það er einstaklega ánægjulegt að finna þann hlýhug og velvild sem hjúkrunarheimilið Höfði nýtur í samfélaginu og eru Lionskonum færðar innilegar þakkir fyrir…Lesa meira

true

Líklega nægt neysluvatn fundið fyrir Akranes og Hvalfjarðarsveit

Undanfarin þrjú ár hafa verið boraðar tilraunaholur til leitar að neysluvatni í um 90 metra hæð yfir sjávarmáli í landi Geldingaár í Hvalfjarðarsveit. Nánar til tekið er borað skammt sunnan við hlíðar Skarðsheiðar. Það er fyrirtækið Barium ehf. sem stendur að framkvæmdinni en það á vatnsréttindin á svæðinu. Fjórar holur hafa verið boraðar á svæðinu…Lesa meira

true

Bílstjóri reyndist réttindalaus, án rekstrarleyfis og flúinn land

Bílstjóri hópferðabíls, sem valt á Snæfellsnesi í október á síðasta ári, hefur verið ákærður vegna lögbrota í tengslum við þá ökuferð. Fréttavefur RUV greinir frá og segir að Lögreglan á Vesturlandi hafi ákært manninn fyrir að aka rútu í atvinnuskyni án meiraprófs og fyrir að stunda ferðaþjónustu án þess að hafa til þess leyfi. Eins…Lesa meira

true

Um 500 starfsmenn á Heilbrigðisstofnun Vesturland

Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) var haldinn á Akranesi í liðinni viku. Einnig kom út ársskýrsla stofnunarinnar með yfirgripsmiklum upplýsingum um starfsemi ársins 2025, áherslur í starfi hennar og verkefnin framundan. „Eftirtektarverður árangur hefur náðst á ýmsum sviðum starfseminnar, t.d. hafa aldrei verið gerðar fleiri liðskiptaaðgerðir en á síðasta ári, alls 421. Markvisst hefur verið unnið…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 50 á sex mánuðum

Íbúar á Vesturlandi eru nú 18.633 og hefur fjölgað um 50 frá 1. desember síðastliðnum, eða um 0,3%. Á Akranesi fjölgaði um 25 íbúa á tímabilinu, í Snæfellsbæ um 19, í Sveitarfélaginu Stykkishólmi um 18, um 6 í Grundarfjarðarbæ, fjóra í Dalabyggð og fjóra í Borgarbyggð. Mest fækkun á tímabilinu varð í Hvalfjarðarsveit þar sem…Lesa meira

true

Dimmiterað í FSN

Útskriftarnemendur Fjölbrautaskóla Snæfellinga brugðu á leik í gær. Að þessu sinni skörtuðu nemendur íþróttabúningum í tilefni dagsins og því mátti sjá spræka íþróttagarpa víðsvegar um Grundarfjörð að leysa hinar ýmsu þrautir. Nemendur fengu svo að koma inn á kennarastofuna í ilmandi vöffluveislu hjá kennurum eins og hefð er fyrir. Útskriftin verður svo 22. maí næstkomandi…Lesa meira