Opnar sýninguna Jaðarsjón í Safnahúsi

Soffía Björg Óðinsdóttir opnar málverkasýninguna Jaðarsjón í Safnahúsi Borgarfjarðar á morgun, laugardaginn 9. maí klukkan 15-17. Þar sýnir hún akrílverk úr ímyndaðri náttúru; fjöll, firði, fossa og hálendi úr hugarheimi listakonunnar. Sýningin verður opin frá 9. maí til 1. júní á opnunartíma Safnahússins.

Soffía Björg Óðinsdóttir er fædd og uppalin í Einarsnesi í Borgarfirði. Hún er búin að vera starfandi tónlistarkona frá árinu 2010 og er þetta hennar fyrsta myndlistarsýning. Soffía Björg og Fríða Dís bassaleikari munu svo taka nokkur lög við opnun sýningarinnar til að brjóta upp dagskrá.

Opnar sýninguna Jaðarsjón í Safnahúsi - Skessuhorn