Á myndinni eru f.v: Sóley Sævarsdóttir húsmóðir, Þorbjörg Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri, Helga Jónsdóttir deildarstjóri dagdvalar og Lionskonurnar Kristbjörg Sigurðardóttir, Sólrún Engilbertsdóttir, Aðalbjörg Alla Sigurðardóttir formaður og Sonja F. Jónsson. Ljósm. Höfði

Eðnukonur færðu Höfða höfðinglega gjöf

Lionsklúbburinn Eðna kom færandi hendi á hjúkrunarheimilið Höfða á Akranesi síðastliðinn miðvikudag. Fulltrúar frá líknarnefnd klúbbsins afhentu hjúkrunarsviði heimilisins seglalyftara og tvær loftdýnur að gjöf. Þá fékk dagdvöl Höfða einnig nýjar sessur. „Það er einstaklega ánægjulegt að finna þann hlýhug og velvild sem hjúkrunarheimilið Höfði nýtur í samfélaginu og eru Lionskonum færðar innilegar þakkir fyrir þessar nytsamlegu og veglegu gjafir. Nýr búnaður mun koma að mjög góðum notum og bæta aðstöðu og vellíðan íbúa og dagdvalargesta,“ segir Valdís Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri.