
Líklega nægt neysluvatn fundið fyrir Akranes og Hvalfjarðarsveit
Undanfarin þrjú ár hafa verið boraðar tilraunaholur til leitar að neysluvatni í um 90 metra hæð yfir sjávarmáli í landi Geldingaár í Hvalfjarðarsveit. Nánar til tekið er borað skammt sunnan við hlíðar Skarðsheiðar. Það er fyrirtækið Barium ehf. sem stendur að framkvæmdinni en það á vatnsréttindin á svæðinu. Fjórar holur hafa verið boraðar á svæðinu frá því í haust og eru þær allar að skila umtalsverðu vatnsmagni, eða frá 15 til 30 lítrum á sekúndu hver hola. Bráðabirgðaniðurstöður sýna að vatnsmagnið er nú komið í um 95 l/sek. Talið er að neysluvatnsþörf á Akranesi sé um 43 l/sek og um 30 l/sek á Grundartanga. Vatnið sem þegar er búið að finna gerir því að líkindum gott betur en að svara þeirri þörf.
Engilbert Runólfsson og Kristín Minney Pétursdóttir eru eigendur Barium. Engilbert segir í samtali við Skessuhorn að fram eigi að fara nánari rannsóknir og í framhaldi af því borun vinnsluholu, einnar eða fleiri. „Þessi vatnsfundur er hins vegar stórfrétt fyrir okkar svæði í ljósi þess að á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit hefur verið neysluvatnsskortur og jafnvel verið að notað geislan yfirborðsvatn til neyslu. Við erum búin að láta rannaka gæði þessa vatns hjá ALS Skandinvia í Svíðþjóð og hjá Matís og niðurstaðan er afburða gæði þess; vatn sem auk neyslu væri hægt að nota í lyfjaiðnað og matvælavinnslu.“
Á síðustu árum hafa samtals verið boraðar 11 rannsóknaholur á svæðinu og þar af fjórar síðan í haust, eins og áður segir. Holurnar eru um 90 metra djúpar. Fóðrað er niður á fast undirlag á 18-21 metra dýpi en byrjað er að bora í gegnum mel. Síðan tekur við þétt berglag en mikill vatnsgangur leynist þar undir. Engilbert segir næsta skref í verkefninu vera að gera vinnsluholu í samstarfi við til þess bæra aðila og mæla til dæmis niðurdrátt, þ.e. að ef dælt er úr einni holunni að það hafi ekki áhrif á þá næstu. Aðspurður segir Engilbert einkum horfa til þess að Veitur verði sá samstarfsaðili, enda sér fyrirtækið um útvegun neysluvatns t.d. á Akranesi. Veitur hafi hins vegar gefið frá sér samstarf um öflun neysluvatns í landi Geldingaár í október í haust, en vonast til að fyrirtækinu snúist hugur með það. Hann segir að það gæti tekið um tvö ár að koma vatninu á Akranesi, en það er um 12 kílómetra leið.
Veitur áhugasamar
Í tilkynningu frá Rún Ingvarsdóttur, samskiptastýru Veitna, til Skessuhorns fyrr í dag segir: „Við höfum verið að vinna að aukinni forðaöflun neysluvatns fyrir Akranes með þá kosti sem voru nærtækastir og vænlegastir til langrar framtíðar m.t.t. magns. Við höfum heyrt af niðurstöðum nýrra borana sem benda til aukins magns í landi Geldingaár. Það eru góðar fréttir og höfum við að sjálfsögðu áhuga á því að skoða það nánar,“ segir Rún.