
Frá vettvangi slyssins að kvöldi 6. október 2025. Ljósm. Skessuhorn
Bílstjóri reyndist réttindalaus, án rekstrarleyfis og flúinn land
Bílstjóri hópferðabíls, sem valt á Snæfellsnesi í október á síðasta ári, hefur verið ákærður vegna lögbrota í tengslum við þá ökuferð. Fréttavefur RUV greinir frá og segir að Lögreglan á Vesturlandi hafi ákært manninn fyrir að aka rútu í atvinnuskyni án meiraprófs og fyrir að stunda ferðaþjónustu án þess að hafa til þess leyfi. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns í haust voru 42 erlendir ferðamenn um borð í rútunni þegar hún fór út af veginum í Seljafirði á Snæfellsnesi að kvöldi 6. október. Bíllinn valt og hafnaði á hvolfi. Enginn slasaðist þó alvarlega en tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík og nokkrir voru sendir þangað með sjúkrabíl.