
Línustokkar á leið frá borði. Ljósm. úr safni/af
Fjallað um áhrif afnáms skeldýrabóta og línuívilnunar í nýrri skýrslu
„Á Vesturlandi yrðu bein fjárhagsleg áhrif fullkomins afnáms línuívilnunar og skeldýrabóta á útsvarstekjur viðkomandi sveitarfélaga mestar á Sveitarfélagið Stykkishólm. Grundarfjarðarbær yrði þar annar í röðinni, Snæfellsbær þriðji og Akraneskaupstaður fjórði. Vísbendingar eru um að möguleikar útgerða í þessum sveitarfélögum til að bæta sér það upp með strandveiði eru samt mestir í Sveitarfélaginu Stykkishólmi, þá Snæfellsbæ, síðan Grundarfjarðarbæ en síst í Akraneskaupstað.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri Glefsu, vefriti Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, en höfundur er dr. Vífill Karlsson hagfræðingur.