Magnús Guðmundsson stýrir umræðum frambjóðenda. Texti og myndir: mm

Héldu sameiginlegan framboðsfund á Akranesi

Framboðin fimm sem bjóða fram lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akranesi 16. maí stóðu fyrir sameiginlegum framboðsfundi í Tónbergi í gærkvöldi. Fundinum stýrði Magnús Guðmundsson. Til svara voru allir oddvitar auk eins að auki frá hverju framboði. Frá Viðreisn voru Jón Guðni Guðmundsson og Helga Björg Þrastardóttir, frá Miðflokki Hrafn Ágúst Björnsson og Ólafur Rúnar Sigurðsson, frá Sjálfstæðisflokki Líf Lárusdóttir og Bjarnheiður Hallsdóttir, frá Samfylkingu Sigurður Vopni og Kristinn Hallur Sveinsson og frá Framsókn með frjálsum Ragnar B Sæmundsson og Liv Ása Skarstad.