
Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 50 á sex mánuðum
Íbúar á Vesturlandi eru nú 18.633 og hefur fjölgað um 50 frá 1. desember síðastliðnum, eða um 0,3%. Á Akranesi fjölgaði um 25 íbúa á tímabilinu, í Snæfellsbæ um 19, í Sveitarfélaginu Stykkishólmi um 18, um 6 í Grundarfjarðarbæ, fjóra í Dalabyggð og fjóra í Borgarbyggð. Mest fækkun á tímabilinu varð í Hvalfjarðarsveit þar sem 18 fleiri fluttu burtu en bættust við. Sex manna fækkun varð í Skorradal og tveir fluttu úr Eyja- og Miklaholtshreppi.