
Klukkan 14:40 í dag barst Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar útkall vegna sinuelds skammt frá skógræktinni Slögu við rætur Akrafjalls. Eldur hafði náð að breiðast hratt út enda jörð afar þurr eftir þurrka liðinna daga. Eldurinn náði að komast inn í skógræktina en með snarræði tókst að slökkva þar. Nokkrir hektarar hafa brunnið og enn er…Lesa meira








