Optical Studio heimsækir Snæfellsnes í næstu viku

Þriðjudaginn 12. maí heimsækir Optical Studio gleraugnaverslun Snæfellsnes og mun setja upp fullbúna verslun í Samkomuhúsinu á Grundarfirði þann dag. Verslunin verður opin frá klukkan 9:00-19:00.

„Þetta er í annað sinn sem Optical Studio heimsækir Snæfellsnes en rúmt ár er síðan við heimsóttum Nesið í fyrsta sinn með fullbúna uppsetta verslun. Viðtökurnar voru stórkostlegar og nutum við þess að geta þjónustað Snæfellinga almennilega með því að koma með verslunina okkar til þeirra þennan dag. Við munum nú aftur mæta með mikið úrval af okkar fallegu vöru, bæði af umgjörðum og sólgleraugum og bjóða 20% afslátt af öllum vörum þennan dag,“ segir í tilkynningu.

Sjónmælingar fara fram á staðnum með nýjasta tækjabúnaði á því sviði. Hægt er að bóka tíma í sjónmælingar á opticalstudio.is og á noona.is eða í síma 511-5800. „En einnig er líka hægt að koma við og skoða úrvalið og versla á staðnum óháð tímabókunum. Við hvetjum alla til að kíkja við til okkar á þriðjudaginn og sjá úrvalið sem við höfum upp á að bjóða. Einnig verðum við með mikið af flottum sólgleraugum á góðu verði,“ segir Hulda Guðný Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Optical Studio.

Optical Studio heimsækir Snæfellsnes í næstu viku - Skessuhorn