Fjölnota íþróttahúsið í Borgarnesi.

Framkvæmdir við fjölnota íþróttahúsið í Borgarnesi

Framkvæmdir eru nú langt komnar við fjölnota íþróttahúsið í Borgarnesi. Um þessar mundir eru Veitur að leggja nýjar inntakslagnir að húsinu. Þetta hefur í för með sér þrengingar á gönguleiðum að og framhjá UMSB-húsinu sem hýsir Frístund, þar á meðal gönguleið grunnskólanemenda sem þverar svæðið. Miðvikudaginn 6. maí lokast allur gegnumakstur í Skallagrímsgötu á þeim kafla sem er á móts við veg að fjölnota íþróttahúsinu, vegna tengingarvinnu við Skallagrímsgötu, en lokunin mun vara í tvær vikur sem er áætlaður verktími við tengingarvinnuna.

„Gangandi vegfarendur og bílstjórar eru beðnir um að sýna aðgát og fylgja merkingum á svæðinu. Foreldrar eru hvattir til að kynna börnum fyrir breyttum aðstæðum í tengslum við gönguleiðir við skóla og íþróttamannvirki,“ segir á vef sveitarfélagsins.

Yfirlitsmynd sveitarfélagsins af framkvæmdasvæðinu. Ljósm. Borgarbyggð