Bjarni gluggar hér í bókina um sögu Guðbjargar Bjarnadóttur, langömmu hans: Líf og raunir í luktum dal.

Bjarni gefur út bókina Líf og raunir í luktum dal

Komin er út bókin Líf og raunir í luktum dal. Í henni er sagt frá umhverfi og ævikjörum Guðbjargar Bjarnadóttur (1851-1937) á Arnarnúpi í Keldudal við utanverðan Dýrafjörð. Lengst af starfsævi sinnar stóð Guðbjörg ein fyrir búi og stóru heimili á Arnarnúpi því ung að aldri missti hún bónda sinn í sjóslysi frá fjórum ungum börnum. Í slysinu missti hún einnig föður sinn og föðurbróður.

„Ævi Guðbjargar tengdi tvenna tíma í lífi þjóðar: Hún lifði síðasta skeið hinna aldagömlu lífs- og atvinnuhátta í Dýrafirði og upphaf nýrrar aldar þegar mannlíf og atvinnuhættir gerbreyttust. Skútur og síðan vélknúin fiskiskip komu í stað árabáta. Þorp tóku að myndast og verstöðvar á útnesjum að leggjast af. Erlendra áhrifa tók að gæta í veiðum og vinnslu sjávarfangs. Blómleg byggð Keldudals tók að láta undan. Þar er nú eyðibyggð,“ segir Bjarni Guðmundsson sem skrifaði bókina. Hann er einn fjölmargra afkomenda Guðbjargar á Arnarnúpi. Bjarni gefur bókina sjálfur út og hjá honum er bókin fáanleg - og hægt að senda honum línu á: bjarnig@lbhi.is eða slá á þráðinn í síma 894-6368.