Hér er eldurinn búinn að berast inn fyrir skógræktargirðinguna umhverfis Slögu. Ljósmyndir: ÓHK

Barist við sinueld við Slögu við rætur Akrafjalls

Klukkan 14:40 í dag barst Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar útkall vegna sinuelds skammt frá skógræktinni Slögu við rætur Akrafjalls. Eldur hafði náð að breiðast hratt út enda jörð afar þurr eftir þurrka liðinna daga. Eldurinn náði að komast inn í skógræktina en með snarræði tókst að slökkva þar. Nokkrir hektarar hafa brunnið og enn er slökkviliðsfólk að störfum.