Skarphéðinn Ólafsson mætti vel fyrir hádegi með skammtinn. Ljósm. tfk

Góð aflabrögð á fyrsta degi strandveiða – myndasyrpa

Strandveiðarnar hófust af krafti í gær og fóru margir bátar til veiða frá Grundarfjarðarhöfn í blíðskaparveðri. Fyrstu bátar voru að koma í land með skammtinn árla morguns og svo komu þeir hver á eftir öðrum það sem eftir lifði dags. Það var því mikið líf og fjör á höfninni þennan fallega mánudag.