Mynd frá því í janúar 2025 þegar skipið var fært frá Norðurgarði yfir á hafnargarðinn til geymslu. Ljósm. tfk

Hringur SH hefur lokið sínu hlutverki í Grundarfirði

Togarinn Hringur SH 153 hefur nú verið siglt frá Grundarfirði í síðasta sinn undir merkjum Guðmundar Runólfssonar hf. Búið er að selja skipið til Nýfundnalands. Hringur var búinn að þjónusta fyrirtækið síðan árið 2005 og reynst afar vel. Skipinu var lagt í janúar á síðasta ári þegar Guðmundur SH leysti hann af. Hringur SH hafði legið við landfestar í Grundarfirði síðan en fær nú nýtt hlutverk í öðru landi.

Hringur SH hefur lokið sínu hlutverki í Grundarfirði - Skessuhorn