Sigríður Guðbjörg ráðin í starf aðstoðarskólameistara

Sigríðar Guðbjörg Arnardóttir hefur verið ráðin í starf aðstoðarskólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga frá og með 1. ágúst nk. Sigríður Guðbjörg er með BA próf í þroskaþjálfafræðum frá Kennaraháskóla Íslands, viðbótardiplóma í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og M.Ed.-próf í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands. Hún er með kennsluréttindi á leik, grunn- og framhaldsskólastigi.

Sigríður Guðbjörg ráðin í starf aðstoðarskólameistara - Skessuhorn