Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í stóriðjuheimsókn.

Kolefnisgeymsla og losunargreining á Grundartanga hljóta styrki

Tvö nýsköpunarverkefni hafa hlotið styrk úr Loftslags- og orkusjóði í úthlutun sem miðar að því að hraða þróun tæknilausna sem dregið geta úr losun gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði innan ETS-kerfisins. Styrkirnir eru veittir í samræmi við atvinnustefnu stjórnvalda og forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum en verkefnin snúa annars vegar að kolefnisbindingu og greiningu á losun og hins vegar að kolefnislausri álframleiðslu. Styrkirnir nema samtals 360 milljónum króna, en bæði verkefnin hlutu hæstu einkunn fagráðs Rannís. Bæði verkefnin tengjast stóriðjusvæðinu á Grundartanga.

Kolefnisgeymsla og losunargreining á Grundartanga hljóta styrki - Skessuhorn