Fréttir

true

Leitað að fjölskyldum fyrir AFS skiptinema

Í lok ágúst í sumar mun AFS á Íslandi taka á móti 22 skiptinemum til að dvelja hjá fjölskyldum og hefja nám í framhaldsskólum. „Okkar stærsta áskorun er að fá fjölskyldur til að taka á móti nemunum okkar og erum við að leita að AFS fjölskyldum út um allt land. Nú þegar er komin ein…Lesa meira

true

Slökkvistarfi lokið við Slögu

Nú rétt í þessu voru liðsmenn frá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar að ljúka við að drepa í síðustu glæðunum í sinueldi sem kviknaði í dag nærri skógræktinni Slögu í norðurhlíðum Akrafjalls. Lauslega má áætla að 3-4 hektarar hafi brunnið. Eldurinn náði í upphafi að teygja sinn inn fyrir girðinguna að svæði Skógræktarfélags Akraness í Slögu.…Lesa meira

true

Barist við sinueld við Slögu við rætur Akrafjalls

Klukkan 14:40 í dag barst Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar útkall vegna sinuelds skammt frá skógræktinni Slögu við rætur Akrafjalls. Eldur hafði náð að breiðast hratt út enda jörð afar þurr eftir þurrka liðinna daga. Eldurinn náði að komast inn í skógræktina en með snarræði tókst að slökkva þar. Nokkrir hektarar hafa brunnið og enn er…Lesa meira

true

Bjarni gefur út bókina Líf og raunir í luktum dal

Komin er út bókin Líf og raunir í luktum dal. Í henni er sagt frá umhverfi og ævikjörum Guðbjargar Bjarnadóttur (1851-1937) á Arnarnúpi í Keldudal við utanverðan Dýrafjörð. Lengst af starfsævi sinnar stóð Guðbjörg ein fyrir búi og stóru heimili á Arnarnúpi því ung að aldri missti hún bónda sinn í sjóslysi frá fjórum ungum…Lesa meira

true

Vilja að gætt verði einnig hagsmuna villtra stofna

Landssamband veiðifélaga hélt nýverið aðalfund sinn að Laugum í Sælingsdal. Var fundurinn vel sóttur af veiðifélögum um allt land og málefni veiðifélaga krufin til mergjar. Eins og við var að búast þá var nýtt frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi fyrirferðarmikið á fundinum. Í því samhengi þá ályktaði fundurinn eftirfarandi: „Aðalfundur Landssambands veiðifélaga, haldinn á Laugum í…Lesa meira

true

Von er á 80 skemmtiferðaskipum til Grundarfjarðar

Grundarfjarðarhöfn og Grundarfjarðarbær buðu þjónustuaðilum og áhugafólki um ferðamál á opinn fund um móttöku skemmtiferðaskipa 2026 í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Ágætis mæting var á fundinn og sköpuðust líflegar umræður um málefnið. Fyrsta skip sumarsins er væntanlegt 17. maí næstkomandi og var markmið fundarins að stilla saman strengi þjónustuaðila, miðla nauðsynlegum upplýsingum og efla samtal og sameiginlega…Lesa meira

true

Hringur SH hefur lokið sínu hlutverki í Grundarfirði

Togarinn Hringur SH 153 hefur nú verið siglt frá Grundarfirði í síðasta sinn undir merkjum Guðmundar Runólfssonar hf. Búið er að selja skipið til Nýfundnalands. Hringur var búinn að þjónusta fyrirtækið síðan árið 2005 og reynst afar vel. Skipinu var lagt í janúar á síðasta ári þegar Guðmundur SH leysti hann af. Hringur SH hafði…Lesa meira

true

Optical Studio heimsækir Snæfellsnes í næstu viku

Þriðjudaginn 12. maí heimsækir Optical Studio gleraugnaverslun Snæfellsnes og mun setja upp fullbúna verslun í Samkomuhúsinu á Grundarfirði þann dag. Verslunin verður opin frá klukkan 9:00-19:00. „Þetta er í annað sinn sem Optical Studio heimsækir Snæfellsnes en rúmt ár er síðan við heimsóttum Nesið í fyrsta sinn með fullbúna uppsetta verslun. Viðtökurnar voru stórkostlegar og…Lesa meira

true

Framkvæmdir við fjölnota íþróttahúsið í Borgarnesi

Framkvæmdir eru nú langt komnar við fjölnota íþróttahúsið í Borgarnesi. Um þessar mundir eru Veitur að leggja nýjar inntakslagnir að húsinu. Þetta hefur í för með sér þrengingar á gönguleiðum að og framhjá UMSB-húsinu sem hýsir Frístund, þar á meðal gönguleið grunnskólanemenda sem þverar svæðið. Miðvikudaginn 6. maí lokast allur gegnumakstur í Skallagrímsgötu á þeim…Lesa meira

true

Kolefnisgeymsla og losunargreining á Grundartanga hljóta styrki

Tvö nýsköpunarverkefni hafa hlotið styrk úr Loftslags- og orkusjóði í úthlutun sem miðar að því að hraða þróun tæknilausna sem dregið geta úr losun gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði innan ETS-kerfisins. Styrkirnir eru veittir í samræmi við atvinnustefnu stjórnvalda og forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum en verkefnin snúa annars vegar að kolefnisbindingu og greiningu á losun og…Lesa meira