
Slökkvistarfi lokið við Slögu
Nú rétt í þessu voru liðsmenn frá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar að ljúka við að drepa í síðustu glæðunum í sinueldi sem kviknaði í dag nærri skógræktinni Slögu í norðurhlíðum Akrafjalls. Lauslega má áætla að 3-4 hektarar hafi brunnið. Eldurinn náði í upphafi að teygja sinn inn fyrir girðinguna að svæði Skógræktarfélags Akraness í Slögu. Erfitt hefði reynst að slökkva eldana þar ef ekki hefði verið brugðist svona skjótt við. Slökkvilið fór með tankbíla eftir gömlum vegslóða ofan við svæðið og þannig reyndist unnt að leggja vatnslagnir að eldinum. Þá var notast við klöppur auk léttitækja á borð við sexhjól og buggybíl við aðgerðirnar síðdegis í dag.
Þetta var þriðja útkallið hjá slökkviliðinu á einum sólarhring. Eftir miðnætti kom upp sinueldur við afleggjarann að Grundartanga en þar logaði á minna svæði en í dag. Í gærdag var útkall að Narfabakka í Melasveit þar sem kviknaði í lithium rafhlöðum fyrir sólarsellur.
