Leitað að fjölskyldum fyrir AFS skiptinema

Í lok ágúst í sumar mun AFS á Íslandi taka á móti 22 skiptinemum til að dvelja hjá fjölskyldum og hefja nám í framhaldsskólum. „Okkar stærsta áskorun er að fá fjölskyldur til að taka á móti nemunum okkar og erum við að leita að AFS fjölskyldum út um allt land. Nú þegar er komin ein fjölskylda í Borgarnesi en við myndum vilja fá fleiri AFS fjölskyldur á Vesturlandi. Fram hefur komið að sum af þeim hafa sýnt áhuga á hestum og langar til að kynnast íslensku sveitalífi,“ segir Sólveig Vilhjálmsdóttir, deildarstjóri hýsingar og stuðnings, hjá AFS samtökunum. Ef frekari upplýsingar óskast má hafa samband á: info-isl@afs.org

Leitað að fjölskyldum fyrir AFS skiptinema - Skessuhorn