Fréttir

true

Fallið frá afnámi línuívilnunar og skelbóta

Meirihluti atvinnuveganefndar Alþingis kynnti á fimmtudaginn breytingu á áður boðuðu frumvarpi um stjórn fiskveiða. „Lagt er til að felld verði brott ákvæði laganna um línuívilnun, rækju- og skelbætur og að mælt verði fyrir um tímabundna jöfnunarheimild vegna strandveiða,“ segir í bókun meirihluta nefndarinnar. Þessar tillögur um afnám skelbóta og línuívilnunar hefur mætt harðri andstöðu í…Lesa meira

true

Framsókn nær inn manni frá síðustu könnun

Í nýrri skoðanakönnun Gallup, sem gerð var fyrir Ríkisútvarpið, er fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi brotið niður á kjördæmi. Þau tíðindi verða nú, frá síðustu könnun, að Framsóknarflokkur eykur fylgi sitt og næði inn kjördæmakjörnum manni í NV kjördæmi, en flokkurinn mælist með 12,3% fylgi. Miðflokkurinn er stærstur í kjördæminu, með 24,2% og fengi tvo kjördæmakjörna.…Lesa meira

true

Sindratorfæran fer fram í dag

Hinn árlega og stórbrotna Sindratorfæra fer fram í í dag kl. 10-16 við Hellu. 31 keppandi er skráður til leiks í tveimur flokkum. Nokkrir sem eru að keppa í sinni fyrstu keppni, aðrir sem hafa verið með í ára raðir og enn aðrir sem eru að koma til baka eftir mislangt hlé. Á meðal keppenda…Lesa meira

true

Áhugasömum frambjóðendum í Dölum boðið að kynna sig

Framboðsfundur vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí verður haldinn fimmtudaginn 7. maí kl. 20 í félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal. Húsið opnar kl. 19:45. Þeir sem hafa áhuga á að verða kosnir í sveitarstjórn Dalabyggðar og vilja taka þátt í fundinum skulu tilkynna þátttöku sína á skrifstofu Dalabyggðar í síma 430 4700 eða senda tölvupóst á netfangið dalir@dalir.is…Lesa meira

true

Banaslys á Skorradalsvatni

Um kvöldmatarleytið í gær var óskað eftir aðstoð lögreglu, björgunarsveita og annarra viðbragðsaðila við leit að kajakræðara sem hafði ekki skilað sér til baka af siglingu á Skorradalsvatni. Fljótlega eftir að leit hófst fannst kajak á hvolfi og kajakræðarinn látinn við fjöruborðið norðan megin í vatninu. Rannsóknadeild Lögreglunnar á Vesturlandi fer með rannsókn málsins og…Lesa meira

true

Dimmiterað í FVA og lokaball í kvöld

Í morgun var dimmision í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, hátíð þegar útskriftarefni skólans kveðja kennara sína og starfsfólk áður en haldið er í prófalestur og þar á eftir á vit nýrra ævintýra. Skólinn bauð til morgunverðar í hátíðarsalnum og síðan leysti hópurinn ýmsar þrautir um skólann í liðakeppni. Að því loknu var förinni heitið til…Lesa meira

true

Aftur hægt að giska á hitann á vatninu

Veitur sendu í dag frá sér þá gleðifrétt að hitamælirinn á dælustöðinni við Akranes er nú mættur aftur til leiks eftir nokkurra ára hlé. Margir þekkja til þess leiks að giskað var á hitastigið á vatninu áður en komið var að tönkunum. Þetta var raunar uppáhaldsbílaleikur fjölskyldna á ferð. Samhliða þessari tilkynningu er birt mynd…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar við Stykkishólmsveg

Byrjað er að fræsa upp Stykkishólmsveg og þar með eru framkvæmdir hafnar við endurnýjun 3,4 kílómetra vegarkafla. Það er Borgarverk sem annast verkið, en fyrirtækið bauð lægst í útboði Vegagerðarinnar í febrúar. Áætlaður verkkostnaður var 274 milljónir króna en Borgarverk bæð 269 milljónir, eða 98,4% af kostnaðaráætlun. Byrjað var að fræsa frá Búðanesvegi og uppúr…Lesa meira

true

Tveir styrkir til Vesturlands úr Framkvæmdasjóði ferðmannastaða

Styrkjum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026 var úthlutað í dag. Heildarfjárhæð styrkja nemur nær 490 milljónum króna sem dreifast til verkefna víðs vegar um landið. Sérstök áhersla var við úthlutun lögð á öryggi á ferðamannastöðum og tók gæðamat sjóðsins mið af þeirri áherslu. „Öryggi á ferðamannastöðum á Íslandi er ekki einungis á ábyrgð stjórnvalda,…Lesa meira

true

Kynningarfundur næsta mánudag vegna almyrkvans

Mánudaginn 4. maí kl. 13:00 – 14:00 hefur verið boðaður kynningarfundur fyrir ferðaþjónustuaðila vegna almyrkva hér um vestanvert landið 12. ágúst nk. Runólfur Þórhallsson yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra stýrir fundi, Atli Viðar Björnsson úr forsætisráðuneytinu fjallar um verkefnið innan landshluta, hvernig er verið að vinna að þessu og hverjir koma að því, hvar getur fólk…Lesa meira