Fjöreggið í Súgandisey.

Tveir styrkir til Vesturlands úr Framkvæmdasjóði ferðmannastaða

Styrkjum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026 var úthlutað í dag. Heildarfjárhæð styrkja nemur nær 490 milljónum króna sem dreifast til verkefna víðs vegar um landið. Sérstök áhersla var við úthlutun lögð á öryggi á ferðamannastöðum og tók gæðamat sjóðsins mið af þeirri áherslu. „Öryggi á ferðamannastöðum á Íslandi er ekki einungis á ábyrgð stjórnvalda, heldur sameiginlegt verkefni okkar allra sem vinnum að málefnum ferðaþjónustunnar. Stórbrotin náttúra Íslands heillar vissulega en hún getur líka verið óvægin. Eitt af hlutverkum Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er því að tryggja öryggi gesta,” sagði ráðherra.