Stjórnsýsluhúsið í Búðardal.

Áhugasömum frambjóðendum í Dölum boðið að kynna sig

Framboðsfundur vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí verður haldinn fimmtudaginn 7. maí kl. 20 í félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal. Húsið opnar kl. 19:45. Þeir sem hafa áhuga á að verða kosnir í sveitarstjórn Dalabyggðar og vilja taka þátt í fundinum skulu tilkynna þátttöku sína á skrifstofu Dalabyggðar í síma 430 4700 eða senda tölvupóst á netfangið dalir@dalir.is fyrir kl. 13 miðvikudaginn 6. maí nk. Eins og kunnugt er verður viðhaft persónukjör í Dalabyggð, líkt og var einnig gert fyrir fjórum árum.