
Fræst, heflað og þjappað. Ljósm. sá
Framkvæmdir hafnar við Stykkishólmsveg
Byrjað er að fræsa upp Stykkishólmsveg og þar með eru framkvæmdir hafnar við endurnýjun 3,4 kílómetra vegarkafla. Það er Borgarverk sem annast verkið, en fyrirtækið bauð lægst í útboði Vegagerðarinnar í febrúar. Áætlaður verkkostnaður var 274 milljónir króna en Borgarverk bæð 269 milljónir, eða 98,4% af kostnaðaráætlun. Byrjað var að fræsa frá Búðanesvegi og uppúr bænum en nú í sumar verður vegurinn endurbættur og breikkaður fram yfir Þingvallaafleggjara. Í verkinu felst fræsing, breikkun og styrking vegar, nýlögn ræsa og nýlögn á bundnu slitlagi. Gert er ráð fyrir að vegurinn verði átta metra breiður, með tveimur 3,5 m breiðum akbrautum og 0,5 m breiðum öxlum.