Banaslys á Skorradalsvatni

Um kvöldmatarleytið í gær var óskað eftir aðstoð lögreglu, björgunarsveita og annarra viðbragðsaðila við leit að kajakræðara sem hafði ekki skilað sér til baka af siglingu á Skorradalsvatni. Fljótlega eftir að leit hófst fannst kajak á hvolfi og kajakræðarinn látinn við fjöruborðið norðan megin í vatninu.

Rannsóknadeild Lögreglunnar á Vesturlandi fer með rannsókn málsins og veitir ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu, en frá þessu er greint á FB síðu lögreglu. „Lögreglan á Vesturlandi biðlar til húseigenda í frístundabyggðum Skorradals um að yfirfara myndefni úr öryggismyndavélum sem snúa að Skorradalsvatni á tímabilinu klukkan 15:30 – 19:00 í gær.“