Aftur hægt að giska á hitann á vatninu

Veitur sendu í dag frá sér þá gleðifrétt að hitamælirinn á dælustöðinni við Akranes er nú mættur aftur til leiks eftir nokkurra ára hlé. Margir þekkja til þess leiks að giskað var á hitastigið á vatninu áður en komið var að tönkunum. Þetta var raunar uppáhaldsbílaleikur fjölskyldna á ferð. Samhliða þessari tilkynningu er birt mynd af vatninu núna og mælist það 88,7 gráður. Þannig má segja að hitastigið hafi vaxið um meira en tíu gráður frá því mælirinn var síðast til staðar, en oftast var hitinn þetta frá 72 til 76 gráður á árum áður. Skýringuna fyrir hækkandi hita má rekja til þess að á undanförnum árum hefur stór hluti aðveituæðarinnar frá Deildartungu og Bæ í Borgarfirði og á Akranes verið einangraður og lagnirnar grafnar í jörðu. Það, ásamt meiri notkun, skýrir hækkun hitans.