Fréttir

true

Kynntu vinnu sem nú er að hefjast við skipulag við Akratorg

Í gær fór fram kynningarfundar vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi Akratorgs vegna Suðurgötu 57, gamla Landsbankahússins. Fjölmenni sýndi kynningunni áhuga og var bæjarþingsalurinn við Dalbraut 4 þétt setinn. Án undantekninga lýstu gestir ánægju sinni með að hreyfing væri loks komin á endurbætur hússins en undanfarin ár hefur ástand þess versnað. Á fundinum var farið yfir…Lesa meira

true

Halldóra Lóa ráðin aðstoðarskólameistari MB

Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir hefur verið ráðin í stöðu aðstoðarskólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar og mun hún hefja störf í haust. Tekur hún við starfinu af Lilju S. Ólafsdóttur sem hefur verið aðstoðarskólameistari frá stofnun skólans. Halldóra Lóa er Reykdælingur og býr í Reykholti ásamt fjölskyldu sinni. Hún er með PMD Stjórnendaþjálfun frá Háskólanum í Reykjavik, MA í…Lesa meira

true

Skagamenn steinlágu fyrir Víkingi R

ÍA og Víkingur Reykjavík mættust á Víkingsvellinum í fjórðu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær. Aðstæður voru ekki upp á sitt besta í rigningu og suðaustan vindi. Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill og skiptust liðin á að sækja án þess að nokkuð markvert gerðist. Skagamenn voru þó nálægt því að skora eftir öflugt…Lesa meira

true

Bændur komnir með ruslapressur fyrir plastið

Gámar sem staðið hafa heima á bæjum í Eyja- og Miklaholtshreppi undir landbúnaðarplast eru komnir til ára sinna og orðnir nokkuð lúnir víðast hvar. Hreppsnefnd ákvað í vetur að fara þá leið að fjárfesta í plastpressum af Landstólpa fyrir bændur og aðra rekstraraðila í sveitarfélaginu. „Þettta er stórt umhverfismál fyrir okkur. Sveitarfélagið mun eiga pressurnar…Lesa meira

true

Pakkhúsið verður á ný opið allan ársins hring

Pakkhúsið í Ólafsvík á sér langa og merkilega sögu og nú hefst nýr rekstur í því undir nafninu Pakkhúsið Saga & Kaffi. Í byrjun aprílmánaðar skrifaði Snæfellsbær undir samning við Yevheniia Korchyha um leigu á Pakkhúsinu, en hún mun hefja rekstur í húsinu á næstu vikum og ætlar að halda áfram að bjóða fólk velkomið…Lesa meira

true

Ferðafélag Snæfellsness endurvakið

Boðað hefur verið til aðalfundar í Ferðafélagi Snæfellsness fimmtudagskvöldið 7. maí næstkomandi klukkan 20:00. Fundurinn verður haldinn að Hraunhálsi í Helgafellssveit. Félagið var upphaflega stofnað árið 2009. „Þetta hófst með því að ég hringdi í Gunnar í fyrri hluta mars síðastliðins og ljáði máls á því að endurvekja starfsemi félagsins,“ segir Guðmundur Rúnar Svansson, oft…Lesa meira

true

Hraðakstur viðvarandi vandamál

Í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi kemur fram að 97 ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku. Þá voru 549 ökumenn að auki myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar var kærður fyrir vörslu á fíkniefnum. Fíkniefnin voru…Lesa meira

true

Sólrún Halla ráðin skólastjóri Grunnskóla Borgarness

Sólrún Halla Bjarnadóttir hefur verið ráðin skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi. Hún er með M.Ed í stjórnun menntastofnana fá Háskóla Íslands, B.Ed í íþrótta- og heilsufræðum og B.Ed í leikskólafræðum. Auk þess hefur hún lokið viðbótardiplómu á meistarastigi í menntastjórnun og matsfræði og aðra diplómu á meistarastigi í hagnýtri stærðfræði í náms- og kennslufræðum. Einnig býr…Lesa meira

true

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin – auglýsing frá sýslumanni

Sýslumaðurinn á Vesturlandi hefur birt meðfylgjandi auglýsingu vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin. Greiða má atkvæði utan kjörfundar á kjörstöðum innan umdæmisins sem hér segir: Uppstigningardag, 14. maí nk., verður opið á skrifstofum embættisins í Stykkishólmi, Borgarnesi og Akranesi milli kl. 11:00 – 13:00. Á kjördag, 16. maí nk., verður opið á þessum…Lesa meira

true

Stórleikur hjá ÍA í kvöld í Bestu deild karla

Það má búast við erfiðum leik hjá Skagamönnum þegar ÍA mætir Víkingi Reykjavík á Víkingsvellinum í 4. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 19:15 í kvöld. ÍA er í 8. sæti með tvö stig en Víkingur R situr í öðru sæti með sjö stig, tveimur stigum á eftir KR sem er á…Lesa meira