
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin – auglýsing frá sýslumanni
Sýslumaðurinn á Vesturlandi hefur birt meðfylgjandi auglýsingu vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin.
Greiða má atkvæði utan kjörfundar á kjörstöðum innan umdæmisins sem hér segir:

Uppstigningardag, 14. maí nk., verður opið á skrifstofum embættisins í Stykkishólmi, Borgarnesi og Akranesi milli kl. 11:00 – 13:00. Á kjördag, 16. maí nk., verður opið á þessum sömu skrifstofum milli kl. 10:00 – 14:00.
Atkvæðagreiðsla í heimahúsi:
Kjósandi, sem vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, getur hvorki sótt kjörfund né kosið utan kjörfundar, getur óskað þess að greiða atkvæði í heimahúsi. Skrifleg umsókn studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans skal hafa borist kjörstjóra eigi síðar en kl. 10:00 fimmtudaginn 14. maí. Umsóknareyðublað má nálgast á vefnum www.kosning.is Mælst er til að beiðnir þessa efnis berist kjörstjóra án ástæðulauss dráttar.
Ábyrgð á atkvæði:
Athygli er vakin á því að kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði til skila, kjósi hann utan kjörfundar hjá kjörstjóra í umdæmi sýslumanns þar sem hann á ekki lögheimili. Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess sveitarfélags þar sem kjósandinn er á kjörskrá. Kjörstjóri annast póstsendingu atkvæðis að beiðni kjósanda. Allir kjósendur, sem greiða atkvæði utan kjörfundar á kjördag, bera sjálfir ábyrgð á að koma atkvæði sínu til skila.
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum við kosninguna (ökuskírteini, vegabréfi eða nafnskírteini).
Vakin er athygli á að unnt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna um land allt.
Ýmsar upplýsingar og eyðublöð vegna komandi kosninga má fá á vefsíðunni www.kosning.is
27. apríl 2026
Sýslumaðurinn á Vesturlandi